Play
íslenskt lággjaldaflugfélag (2019-2025) From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Play var íslenskt lággjaldaflugfélag sem starfaði frá 2019 til 2025.
Remove ads
Saga
Tveir stjórnarmenn WOW air, Arnar Már Magnússon og Sveinn Ingi Steinþórsson lýstu því yfir í júlí 2019 að nýtt flugfélag væri í bígerð og var vinnuheitið WAB (We are back). Fjármögnun félagsins kom 80 prósent erlendis frá en 20 prósent frá Íslandi.
Play ætlaði sér upphaflega að hefja flug vorið 2020. Í nóvember 2020 hafði félagið enn ekki fengið flugrekstrarleyfi en lýsti yfir því að það hefði í hyggju að hefja flug á öðrum ársfjórðungi 2021.[1] Flugfélagið áætlaði upphaflega að það hefði 14 áfangastaði í Evrópu og Bandaríkjunum[2] og að fyrstu áfangastaðirnir yrðu Kaupmannahöfn, London, París, Berlín, Alicante og Tenerife.[3] Play hóf að selja fyrstu flugmiðana í maí 2021. Athygli vakti að kjarasamningar félagsins sýndu laun undir lágmarkslaunum á Íslandi. ASÍ hvatti í kjölfarið til sniðgöngu á flugfélaginu. [4] Félagið var síðar með tugi áfangastaða í Evrópu, Bandaríkjunum, Marokkó og Tyrklandi.
Þann 29. september 2025 tilkynni stjórn félagsins að það myndi hætta starfsemi vegna langvarandi rekstrarerfiðleika og lýsa sig gjaldþrota með þeim afleiðingum að 400 manns misstu vinnuna.[5][6]
Remove ads
Tilvísanir
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads
