Prentari
From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Prentari er tæki sem er notað til að skapa útprentanir af skjölum, sem eru vistuð í tölvu, á pappír eða pappa til dæmis. Flestir prentarar eru tengdir tölvu með USB-kapli, sem flytur prentara gögn til að prenta út. Það eru líka til netprentarar, það er að segja prentarar sem eru tengdir staðarneti með Ethernet-kapli. Þessir prentarar geta verið notaðir af mörgum tölvum tengdum staðarnetinu. Oft geta prentarar tengst bæði staðartölvum eða tölvum í staðarneti. Auk þess geta margir nútímaprentarar prentað út beint úr minnisbúnaði eins og minniskorti eða vasaminni, matað tölvunni gögn með skanna, sent þessi gögn í símabréfi eða ljósritað skjöl. Þessi tegund af prentara heitir fjölnotatæki.

Nútímaprentarar eru byggðir á ýmsum prentunartækjum og þess vegna eru nokkrar gerðir til:
- Geislaprentari – notar stöðurafmagn til þess að setja prentduft á blað
- Bleksprautuprentari – litlir blekdropar kastast á blað, algengastur á heimilum
- Hitaprentari – hitar svæði á hitanæmum pappír, oftast notaðir til að prenta út kvittanir og annað slíkt
Það eru líka nokkrar gerðir af prentunartækjum sem eru ekki lengir notaðar:
Remove ads
Tengt efni
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads