Risalerki
From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Risalerki er stórvaxnasta lerkitegundin. Það er einstofna tré með reglulega krónu og vex í fjöllum í norðvesturhluta Bandaríkjanna og í suðurhluta Bresku Kólumbíu. Það vex aðallega í Klettafjöllum en t.d. líka í Fossafjöllum. Það verður vanalega 30 til 55 metrar fullvaxið en getur náð rúmum 60 metrum.[1]

Remove ads
Á Íslandi
Lítil reynsla er af því á Íslandi. Hugsanlega má finna megi kvæmi innan útbreiðslusvæðis risalerkis sem geta lifað og vaxið nægilega vel á Íslandi til að þau nýtist a.m.k. í trjárækt eða skógrækt.[2] Risalerki hefur svipaða aðlögun að veðurfari og evrópulerki, þ.e. vex yfirleitt of lengi fram eftir hausti, en er mun beinvaxnara þrátt fyrir það. Virðist það þó vera viðkvæmt fyrir bæði nála- og átusjúkdómum hérlendis, sem evrópulerki er ekki. [3]

Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Risalerki.

Wikilífverur eru með efni sem tengist Risalerki.
Remove ads
Tilvísanir
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads