Skrifletur

From Wikipedia, the free encyclopedia

Skrifletur
Remove ads

Skrifletur, ritmál, eða einfaldlega letur, er kerfi notað til þess að skrifa tungumál með táknum.

Thumb
Útbreiðsla leturs í heiminum.

Tegundir

Til eru nokkrar gerðir leturs:

Stafróf

Stafróf nota yfirleitt eitt tákn fyrir hvert hljóð (til dæmis wikipedia). Dæmi: latneskt letur, grískt letur, georgíska stafrófið.

Abdsjad

Abdsjad virkar eins og stafróf nema hvað sérhljóð eru sjaldnast skrifuð. Lesandinn verður að þekkja orðið í útliti (til dæmis „wkpda“). Dæmi: arabískt letur, fönískt stafróf, hebreska stafrófið.

Abúgída

Abúgídur byggjast fyrst og fremst á samhljóðum. Sérhljóðar gegna aukahlutverki en þeim má þó ekki sleppa (til dæmis WiKiPeDia). Dæmi: devanagari, baybayin, taílenskt letur.

Atkvæðaróf

Í slíkum kerfum stendur hvert tákn yfirleitt fyrir eitt athvæði (til dæmis (wi-ki-pe-dia). Dæmi: katakana, cree, línuletur B.

Myndletur

Hvert myndtákn stendur yfirleitt fyrir eina hugmynd (til dæmis [wiki]+[pedia] í tveimur táknum). Dæmi: kínversk tákn, híeróglýfur, fleygrúnir.

  Þessi grein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.
Remove ads
Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads