Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 1987
32. Eurovision-keppnin From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 1987 var sú 32. og var haldin 9. maí 1987 í Brussel, Belgíu eftir að Sandra Kim hafði unnið keppnina árið áður. Viktor Lazlo var kynnir kvöldsins og Johnny Logan, keppandi Írlands, bar sigur úr býtum með lagið Hold Me Now. Logan hafði áður unnið keppnina árið 1980 og varð hann fyrsti keppandi til þess að vinna keppnina tvisvar. 22 lönd tóku þátt í kepninni og var það nýtt met, en Mónakó, Malta og Marokkó voru einu löndin sem höfðu áður tekið þátt sem voru ekki með það ár. Mikill ágreiningur varð í Ísrael yfir lagi þeirra það ár, Shir Habatlanim, sem var sungið af grínistum. Menningarráðherra þeirra hótaði að segja af sér ef lagið yrði sungið í Brussel þó ekkert hafi orðið úr því þegar lagið var sent í keppnina. Lagið, sem er betur þekkt sem Hoopa Hoole, varð seinna mjög vinsælt á Íslandi.
Remove ads
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads