Úllen dúllen doff - Kisubörnin kátu
From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Úllen dúllen doff - Kisubörnin kátu er 33 snúninga LP hljómplata gefin út af SG - hljómplötum árið 1982. Á henni flytur Úllen dúllen doff leikflokkurinn leikrit fyrir börn búið til flutnings af Gísla Rúnari Jónssyni eftir sögu Walt Disney í þýðingu Guðjóns Guðjónssonar. Leikstjóri: Gísli Rúnar Jónsson. Hljóðritun fór fram hjá Hljóðrita hf. Tæknimenn: Hjörtur Howser og Pétur Hjaltested. Viðbótarhljóðritun og hljóðblöndun fór fram hjá Ríkisútvarpinu. Tæknimaður: Vigfús Ingvarsson. Ljósmynd á framhlið: Ólafur Jónsson. Ljósmynd á bakhlið: Bjarnleifur. Filmuvinna og prentun: Prisma
Remove ads
Hlutverk og leikendur:
- Ljósastaurinn - Gísli Rúnar Jónsson
- Putti - Þórhallur (Laddi) Sigurðsson
- Patti - Sigurður Sigurjónsson
- Ponta - Edda Björgvinsdóttir
- Frú Tvífætla - Edda Björgvinsdóttir
- Lóló litla - Edda Björgvinsdóttir
Tónlist
Tónlist og áhrifahljóð eru eftir Gísla Rúnar Jónsson og útsett af honum ásamt Magnúsi Kjartanssyni. Hljóðfæraleikur: Magnús Kjartansson.
Hljóðdæmi
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads