Samsung

From Wikipedia, the free encyclopedia

Samsung
Remove ads

Samsung er suðurkóresk samsteypa með höfuðstöðvar í Samsung Town í Seoul. Fyrirtækið samanstendur af nokkrum dótturfyrirtækjum en flest þeirra eru rekin undir merkinu Samsung. Það er stærst svokallaðra chaebol-fyrirtækja, sem er kóreskt heiti á þessari tegund samsteypa.

Staðreyndir strax Rekstrarform, Staðsetning ...

Samsung var stofnað sem verslunarfyrirtæki árið 1938 af Lee Byung-chul. Á næstu þremur áratugunum sem fylgdu óx fyrirtækið og hóf starfsemi á nokkrum nýjum sviðum, meðal annars matarvinnslu, vefnaðariðnaði, tryggingu og smásölu. Samsung fór í rafmagnstækjaiðnaðinn á seinniparti sjöunda áratugarins og fór í byggingar - og skipasmíðaiðnaðina á áttunda áratugnum. Velgengni Samsung í þessum iðnuðum leiddi til mikils vaxtar þess næstu árin. Eftir dauða Byung-chuls árið 1981 var fyrirtækinu skipt upp í fjóra hluta: Samsung Group, Shinsegae Group, CJ Group og Hansol Group. Í byrjun tíunda áratugarins byrjaði Samsung að alþjóðavæða starfsemi sína og rafmagnstæki eru orðin helsta tekjuöflunarleið þess.

Samsung hefur mikil áhrif á stjórnmál, fjölmiðla og menningu Suður-Kóreu. Fyrirtækið hefur gegnt mikilvægu hlutverki í efnahagsvexti Suður-Kóreu og saman framleiða Samsung-fyrirtækin um það bil fimmtung allra útflutningsvara landsins.

  Þessi fyrirtækjagrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.
Remove ads
Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads