Semikomma
From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Semikomma eða semíkomma ( ; ) er greinarmerki sem er einkum notað til að tengja saman tvær nátengdar setningar.[1] Semikomma er þó alla jafna notuð í staðinn fyrir punkt á milli tveggja setninga þar sem seinni setningin táknar afleiðingu eða andstæðu þeirra fyrstu.
Semikomma getur einnig verið notuð í upptalningu til að greina sams konar hluti frá öðru.[2]
Tákn um að lifa af sjálfsvígshugsanir
Stundum er sagt að semikomma í texta komi þar sem setning hefði getað endað en höfundur kýs að halda áfram. Af þeim sökum er semikomma notuð sem merki þeirra sem hafa verið komnir að sjálfsvígi, en hafa hætt við og kosið að halda áfram að lifa.
Dæmi um notkun semikommu
Almenn notkun
- Hún kom seint heim frá flugvellinum; hún var því þreytt daginn eftir.
Upptalning
- Mig vantar mjólk, egg, hveiti; flugelda, kveikjara, rakettur; ritföng, pappír og liti.
Heimildir
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads