Sigmar Guðmundsson

íslenskur stjórnmálamaður og fyrrum fjölmiðlamaður From Wikipedia, the free encyclopedia

Sigmar Guðmundsson
Remove ads

Sigmar Guðmundsson (f. 7. apríl 1969) er alþingismaður Viðreisnar í Suðvesturkjördæmi. Hann starfaði um árabil í fjölmiðlum en var kjörinn á þing í alþingiskosningunum 2021.

Staðreyndir strax (SGuðm), Alþingismaður ...

Á menntaskólaárum tók Sigmar þátt í Mælsku- og rökræðukeppni framhaldsskóla á Íslandi (Morfís) fyrir hönd Fjölbrautaskólans í Garðabæ og var valinn ræðumaður Íslands árin 1988 og 1990. Fjölmiðlaferil sinn hóf hann í útvarpi á X-inu og Aðalstöðinni, en hefur frá miðbiki tíunda áratugsins að mestu unnið á RÚV fyrir utan tveggja ára vistar á Stöð 2 um aldamótin.[1] Innan veggja RÚV starfaði Sigmar við ýmsa dagskrárgerð, til að mynda sem blaðamaður í Kastljósi og spyrill í Gettu Betur árin 2006-2008 og í Útsvari árin 2007-2017 (ásamt Þóru Arnórsdóttur). Hann sá um þættina Okkar á milli á RÚV og Morgunútvarp Rásar 2.

Eftir 30 ár í fjölmiðlum og þar af 23 ár á RÚV ákvað Sigmar að söðla um og bjóða sig fram til Alþingis fyrir hönd Viðreisnar árið 2021. [2]

Remove ads

Tilvísanir

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads