Stapafell
From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Stapafell er um 526 m hátt mænislaga bert og skriðurunnið móbergsfjall sem gengur suður úr undirhlíðum Snæfellsjökuls, um 3 km norður frá Hellnum og fyrir ofan Arnarstapa. Vegur liggur upp með fjallinu að austan norður um Kýrskarð og Jökulháls til Ólafsvíkur. Norðaustan við Stapafell er Botnsfjall sem í er Rauðfeldargjá og er hægt að ganga inn eftir gjánni inn að botni. Efst á Stapafelli er kletturinn Fellskross, fornt helgitákn en fellið er talið vera bústaður dulvætta.
Remove ads
Nálægir staðir
Heimild
- Vesturland - Afþreying og staðir Geymt 9 nóvember 2013 í Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni
- Þorsteinn Jósepsson, Steindór Steindórsson og Páll Líndal (1982). Landið þitt Ísland, S-T. Örn og Örlygur.

Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads