Arnarstapi
From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Arnarstapi eða Stapi er lítið þorp eða þéttbýli á sunnanverðu Snæfellsnesi. Það er undir Stapafelli, á milli Hellna og Breiðuvíkur.


Frá árinu 1565 sátu umboðsmenn konungs, sem höfðu á leigu jarðir þær sem Helgafellsklaustur hafði átt, á Arnarstapa og kallaðist umboðið Stapaumboð. Þeir voru oft jafnframt sýslumenn eða lögmenn og á 19. öld sátu amtmenn Vesturamtsins einnig á Stapa. Þar hafa ýmsir þekktir menn verið um lengri eða skemmri tíma. Fatlaða skáldið Guðmundur Bergþórsson átti þar heima á 17. og 18. öld. Bjarni Thorsteinsson amtmaður var þar 1821-1849 og þar ólst sonur hans, þjóðskáldið Steingrímur Thorsteinsson, upp. Gamla Amtmannshúsið á Arnarstapa (Stapahúsið) var reist þar á árunum 1774-1787 og er því eitt af elstu húsum á Íslandi. Árið 1849 var það tekið niður og flutt að Vogi á Mýrum, þar sem það var til 1983. Það var reist aftur á Arnarstapa 1985-1986 og friðað árið 1990.
Lendingin á Arnarstapa var talin ein sú besta undir Jökli og var þar fyrrum kaupstaður, á tíma einokunarverslunarinnar og allt til ársins 1821, og mikið útræði frá því snemma á öldum. Þar er smábátahöfn sem var endurbætt 2002. Hún er nú eina höfnin á sunnanverðu Snæfellsnesi og þaðan eru gerðir út allmargir dagróðrabátar á sumrin. Á Arnarstapa er einnig nokkur sumarhúsabyggð og mikið er þar um ferðamenn, einkum á sumrin. Þar er veitingahús og ýmiss konar ferðaþjónusta.
Mikil náttúrufegurð er í grennd við Arnarstapa. Ströndin milli Stapa og Hellna var gerð að friðlandi 1979, en hún þykir sérkennileg og fögur á að líta. Vestur með henni er Gatklettur og þrjár gjár, Hundagjá, Miðgjá og Músagjá, sem sjávarföll hafa holað inn í bergið. Op eru í þaki þeirra nokkuð frá bjargbrún, hvar sjór gýs upp og brimsúlur þeytast hátt í loft upp og talið ólendandi í Arnarstapa þegar Músagjá gýs sjó. Vinsæl gönguleið á milli Arnarstapa og Hellna er að hluta gömul reiðgata á milli þessara staða.
Á Arnarstapa er steinkarl mikill, sem Ragnar Kjartansson myndhöggvari hlóð, og heitir hann Bárður Snæfellsás. Margir hafa einmitt trú á því að Bárður vaki yfir svæðinu undir Jökli.
Remove ads
Nálægir staðir
Heimild

Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Arnarstapi.
- Arnarstapi Geymt 10 ágúst 2011 í Wayback Machine
- „Vesturland.is - Afþreying og staðir“. Sótt 15. júlí 2010.
- Þorsteinn Jósepsson, Steindór Steindórsson, Páll Líndal (1982). Landið þitt Ísland, A-G. Örn og Örlygur.
 Þessi landafræðigrein  sem tengist Íslandi er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.
  Þessi landafræðigrein  sem tengist Íslandi er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.Remove ads
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads
