Sverdrup

From Wikipedia, the free encyclopedia

Sverdrup
Remove ads

Sverdrup (táknað Sv) er SI-mælieining sem er einkum notuð í haffræði til að mæla straumstyrk hafstrauma. Eitt Sverdrup samsvarar einni milljón rúmmetra á sekúndu.[1] Það jafngildir því SI-einingunni 1 hektórúmmetri á sekúndu (hm3/s). Mælieiningin dregur nafn sitt af norska haffræðingnum Harald Sverdrup.

Thumb
Iður í Labradorstraumnum.

Sem dæmi má nefna að Golfstraumurinn er um 30 Sv við Flórída en verður allt að 130 Sv við Nýfundnaland.[2] Suðurhafsstraumurinn er um 125 Sv og er stærsti úthafsstraumurinn.[3]

Remove ads

Tilvísanir

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads