Taugaveiki

From Wikipedia, the free encyclopedia

Taugaveiki
Remove ads

Taugaveiki (áður fyrr stundum nefnd tyfussótt, fræðiheiti: febris typhoidea) er óloftbær bakteríu-smitsjúkdómur sem berst einkum með vatni og matvælum, einkum í suðlægum löndum. Nefnd baktería ber heitið salmonella typhi og hún herjar á meltingarveg líkamans.[1]

Thumb
Útbreiðsla taugaveiki. Rauður táknar háa landlæga sjúkdómstíðni og brúnn táknar miðlungs landlæga sjúkdómstíðni.

Veturinn 1906-1907 braust út taugaveikifaraldur í Skuggahverfinu í Reykjavík. [2] Alls veiktust 98 manns og var orsökin rakin til bakteríumengunar í Móakotslind sem var brunnur og eitt helsta vatnsbólið í hverfinu og stóð við horn Vatnsstígs og Lindargötu en báðar þessar götur draga nafn sitt af henni.

Remove ads

Útbreiðsla

17 milljón sýkingartilfelli eru áætluð á hverju ári og mesta útbreiðslan er í Asíu, Afríku, Mið- og Suður-Ameríku.[1] Taugaveiki var nokkuð algengur sjúkdómur á Íslandi á árum áður og voru menn þá stundum settir í einangrun vegna smithættu. [3] Áður fyrr létust um 10 - 20 af hundraði þeirra sem veiktust en í dag er þessi tala komin undir 1 %.

Heimildir

Tenglar

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads