Tony Iommi

From Wikipedia, the free encyclopedia

Tony Iommi
Remove ads

Anthony Frank „Tony“ Iommi (fæddur 19. febrúar 1948) er enskur gítarleikari sem er þekktastur fyrir að vera meðlimur þungarokkssveitarinnar Black Sabbath.

Thumb
Iommi árið 2009

Tony Iommi er fæddur í Birmingham, Englandi. Á unglingsárum lenti hann í slysi í verksmiðju þar sem hann vann og missti framan af tveimur fingrum. Hann óttaðist að hann ætti aldrei eftir að spila á gítar framar en kunningi hans kynnti honum fyrir Django Reinhardt, jazzgítarleikara sem hafði einnig skaddast á fingrum. [1] Iommi varð innblásinn af því og bjó til eins konar stubba til að festa framan á sködduðu fingurna.

Árið 1968 æfði Iommi með Jethro Tull í nokkrar vikur og kom fram með þeim í sjónvarpi ( sem hluti af The Rolling Stones Rock & Roll Circus).

Iommi hélt uppi nafni Black Sabbath á 9. og 10 áratugnum þegar upprunalegir meðlimir hljómsveitarinnar höfðu hætt.

Árið 2000 gaf hann út sólóplötu sína, Iommi þar sem ýmsir gestasöngvarar tóku þátt. 2011 gaf Iommi út sjálfsævisögu sína: Iron Man: My Journey through Heaven and Hell with Black Sabbath.

Iommi var greindur árið 2012 með krabbamein en hann fór í meðferð við því sem hélt því í skefjum.[2]

Rolling Stone tímaritið raðaði honum í númer 25 af 100 bestu gítarleikurum sögunnar.[3]

Remove ads

Sólóskífur

  • Seventh Star (1986) (þó gefið undir Black Sabbath nafninu)
  • Iommi (2000) (með ýmsum)
  • The 1996 DEP Sessions (2004) (með Glenn Hughes)
  • Fused (2005) (með Glenn Hughes)
  • Ian Gillan & Tony Iommi: WhoCares (2012)

Tilvísanir

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads