X (samfélagsmiðill)
From Wikipedia, the free encyclopedia
X, áður kallað Twitter, er samfélagsmiðill, örbloggskerfi og netsamfélag stofnaður í mars 2006 af Jack Dorsey, Noah Glass, Biz Stone, og Evan Williams, núorðoð sá stærsti í heimi. Hægt er að senda inn 280 stafa færslur (upphaflegt hámark 140 stafir var svo kæmist fyrir í SMS). Upphaflega hugmyndin var að notendur gætu bloggað á X með smáskilaboðum (SMS-skilaboðum) úr farsímum.
![]() | |
---|---|
Vefslóð | x.com/ |
Gerð | Samfélagsmiðill |
Tungumál | Fjölmála |
Eigandi | Odeo (Mars–Október 2006)
Obvious Corporation (2006–2007) Twitter, Inc. (2007–2023) X Corp. (2023–) |
Stofnað af | Jack Dorsey, Noah Glass, Biz Stone, Evan Williams |
Hleypt af stokkunum | 21. mars 2006 |

Þann 27. október 2022 keypti Elon Musk fyrirtækið fyrir 44 milljarða bandaríkjadala (tók af hlutabréfamarkaði),[1][2] og varð sjálfur forstjóri þess. Elon hafði áður hætt við fyrirhuguð kaup vegna ónógra upplýsinga um falsreikninga hjá fyrirtækinu. En eftir nokkurra mánaða þref við fyrri eigendur, sem höfðu stefnt honum fyrir samningsbrot, gengu kaupin þó í gegn. Hann rak þá yfirmenn fyrirtækisins,[3] og í kjölfarið breyti mörgu varðandi Twitter, sagði t.d. upp um helmingi starfsmanna (að sögn til að bjarga fyrirtækinu frá gjaldþroti), og breytti reglum og hætti t.d. að framfylgja sumum, s.s. að merkja færslur sem tengdust kórónufaraldrinum. Hann tilkynnti í desember 2022 að hann myndi fara frá sem forstjóri, en myndi þó enn vera yfir hugbúnaðargerð fyrirtækisins. Í júlí árið 2023 breytti Elon nafni samfélagsmiðilsins í X, sem að fékk mikla gagnrýni frá notendum. Í september árið 2023 tilkynnti Musk áform sín um að rukka notendur samfélagsmiðilsins til þess að nota miðilinn.
Tilvísanir
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.