Vísitala um þróun lífsgæða

From Wikipedia, the free encyclopedia

Vísitala um þróun lífsgæða
Remove ads

Vísitala um þróun lífsgæða (enska: Human Development Index, skammstafað: HDI) er vísitala sem mælir lífslíkur, læsi, menntun og lífsgæði. Þessi mælikvarði gefur lauslega til kynna hvort land teljist til þróaðra landa eða þróunarlanda. Mælikvarðinn var hannaður af pakistanska hagfræðingnum Mahbub ul Haq árið 1990 og hefur verið notaður í árlegum skýrslum Þróunaráætlunar Sameinuðu þjóðanna frá árinu 1993. Á hverju ári er reynt að meta öll aðildarríki Sameinuðu þjóðanna samkvæmt þessari aðferð.

Thumb
Heimskort sem sýnir vísitölu um þróun lífsgæða og flokka hennar (byggist á gögnum frá 2018, gefið út árið 2019).[1]
  0.800–1.000 (mjög hátt)
  0.700–0.799 (hátt)
  0.550–0.699 (meðal)
  0.350–0.549 (lágt)
  Gögn ekki til

Vægi vísitölunnar byggist á þremur þáttum.

  • Meðal lífslíkur frá fæðingu
  • Hlutfall læsis á meðal fullorðinna og hlutfall sem stundar nám við skóla á öllum stigum.
  • Lífsgæði mæld með vergri landsframleiðslu með kaupmáttarjöfnuði í bandarískum dölum.

Einnig er til vísitala fátæktar.

Remove ads

Tengt efni

Tenglar

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads