Vaxtavextir
From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Vaxtavextir eru vextir af vöxtum; þá er átt við að á vaxtagjalddaga eru vextirnir reiknaðir af upprunalegum höfuðstól að viðlögðum fyrri vaxtagreiðslum. Algengt dæmi eru almennir innlánareikningar sem bera árlega vexti, ef launþegi leggur 1.000 krónur inn á reikning með 10% ársvöxtum munu innvextir að ári liðnu vera 100 krónur og þær leggjast ofan á höfuðstólinn. Næsta vaxtagjalddaga yrðu reiknaðir 10% vextir af 1.100 krónum og innvextirnir því vera 110 krónur. Hver vaxtagreiðsla er því hærri en sú fyrri að öðru óbreyttu (það er, vextir breytast ekki og ekki er tekið af höfuðstólnum). Vaxtavextir hafa því í för með sér veldisvöxt höfuðstólsins og hann er hraðari eftir því sem vaxtatíðni eykst að öðru óbreyttu. Í dæminu að ofan er staða reikningsins 1.210 krónur eftir tvö ár en ef vaxtagreiðslur væru mánaðarlegar (með sömu ársvexti) væri fjárhæðin meira en 1.220 krónur. Þessu er hægt að lýsa með eftirfarandi jöfnu:Þar sem P
er upprunalegur höfuðstóll, r
eru ársvextir, n
vaxtatíðni og t
fjöldi vaxtatímabila.
Til forna var litið á vaxtavexti sem hið versta okur og voru þeir til að mynda bannaðir í Rómarrétti auk þess að vera lagðir til jafns við guðlast í flestum útbreiddustu trúarbrögðum veraldar, og átti það einnig við í öndverðu á Íslandi eða allt fram að siðaskiptum.[1]
Nú til dags er misjafnt eftir löndum hvort notaðir séu vaxtavextir, en á Íslandi hefur það almennt verið heimilt samkvæmt nútímalöggjöf. Fjallað er um vaxtavexti í 12. gr. núgildandi laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001, þar sem segir að sé vaxtatímabil lengra en tólf mánuðir án þess að vextirnir séu greiddir skuli þeir lagðir við höfuðstól og nýir vextir reiknaðir af samanlagðri fjárhæð. Ekki má þó bæta vöxtum við höfuðstól oftar en á tólf mánaða fresti, nema um sé að ræða innlánsreikninga lánastofnana (banka).
Vaxtavextir birtast líka í þeirri aðferð sem notuð hefur verið á Íslandi síðan árið 1979 við verðtryggingu lánsfjár, sem felst í því að færa verðbótaþátt vaxta ofan á höfuðstól láns áður en nafnvextir eru reiknaðir af hinum nýja höfuðstól á hverjum gjalddaga, sem jafngildir því að reiknaðir séu grunnvextir af þeim hluta heildarvaxta sem svarar til verðbótaþáttarins. Þetta er þó ekki augljóst af því hvernig vextir eða verðtrygging virka ein og sér, heldur er það sprottið af samspili þeirra þegar bæði koma saman í slíkri útfærslu. Óverðtryggð lán með svokölluðu vaxtagreiðsluþaki geta einnig tekið á sig svipaða eiginleika ef breytilegir vextir þeirra hækka yfir umsamin mörk.[2]
Remove ads
Tenglar
Tengt efni
Tilvísanir
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads