Vinstristefna

From Wikipedia, the free encyclopedia

Remove ads

Vinstristefna í stjórnmálum er hugtak sem gjarnan er notað um sameignarstefnu (kommúnisma), jafnaðarstefnu eða frjálslynda jafnaðarstefnu og skilgreint sem andstæða hægristefnu.

Nafnið er dregið af því að í frönsku byltingunni sátu frjálslyndir fulltrúar þriðju stéttarinnar (bænda, borgara, verkamanna) yfirleitt vinstra meginn við forsetastólinn á stéttaþingum samkvæmt venju sem hófst 1789. Aðallinn sem tilheyrði annarri stéttinni sat yfirleitt hægra meginn. Það er ennþá hefðin í franska löggjafarþinginu (Assemblée Nationale) að þingmenn sitji vinstra eða hægra meginn í salnum í samræmi við pólitíska stefnu sína.

Merkingin hefur breyst nokkuð í tímans rás, upprunalegu vinstri-mennirnir á franska stéttaþinginu voru vel efnaðir borgarar sem að studdu frjálst markaðshagkerfi og lágmarksríkisafskipti, gildi sem að á okkar dögum þykja fremur hægrisinnuð. Andstæðingar þeirra á hægri kantinum voru þá íhaldsmenn og konungssinnar sem studdu óbreytt ástand en einnig lentu þeir í andstöðu við vaxandi samtök verkamanna og launafólks sem höfðu aðrar áherslur.

  Þessi grein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.
Remove ads
Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads