Xavier Dolan

kanadískur kvikmyndagerðarmaður From Wikipedia, the free encyclopedia

Xavier Dolan
Remove ads

Xavier Dolan-Tadros (f. 20. mars 1989) er kanadískur kvikmyndagerðarmaður og leikari. Hann hóf feril sinn sem leikari í auglýsingum áður en hann leikstýrði nokkrum „arthouse“-kvikmyndum. Hann fékk fyrst alþjóðlegt lof árið 2009 fyrir kvikmynd sína Ég drap mömmu mína (J'ai tué ma mère) sem var frumsýnd á Kvikmyndahátíðinni í Cannes.

Staðreyndir strax Fæddur, Störf ...

Dolan hefur unnið til margra verðlauna fyrir verk sín, þar á meðal Dómnefndarverðlaun á Cannes árið 2014 fyrir Mömmu og Grand Prix á Cannes 2016 fyrir Þetta er bara heimsendir.

Dolan hefur einnig leikstýrt tónlistarmyndböndum, m.a. fyrir lög Adele, Hello (2015) og Easy on Me (2021) en fyrir það seinna fékk hann tilnefningu til Grammy-verðlaunanna.

Remove ads

Æska

Dolan er fæddur og uppalinn í Montréal í Québec í Kanada. Hann er sonur Geneviève Dolan, skólastýru framhaldsskóla af írskum ættum, og Manuel Tadros, egypskum-kanadískum leikara og söngvara af líbönskum ættum. Foreldrar hans skildu þegar hann var tveggja ára. Dolan ólst upp hjá móður sinni í úthverfi Montréal.

Einkalíf

Dolan er samkynhneigður[1] og hefur lýst sinni fyrstu kvikmynd, Ég drap mömmu mína, sem hálfgerðri sjálfsævisögu.

Kvikmyndaskrá

Kvikmyndir í fullri lengd

Sem kvikmyndagerðarmaður

Nánari upplýsingar Árið, Upprunalegur titill ...

Leikhlutverk

Nánari upplýsingar Ár, Titill ...

Tilvísanir

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads