Ónæmiskerfi
From Wikipedia, the free encyclopedia
Ónæmiskerfi er kerfi lífrænna ferla í lífveru sem gerir henni kleift að verjast sjúkdómum og sýkingum. Til þess að ónæmiskerfi veiti lífverunni almennilega vörn þarf það að geta greint ýmiss konar ógn við heilsu lífverunnar, allt frá veirum til sníkjudýra, og greint hana frá heilbrigðum vefjum lífverunnar sjálfrar. Ónæmiskerfi beitir ýmist sérhæfðum frumum, sem ráðast gegn utanaðkomandi ógn, eða mynda mótefni.
Eftirfarandi umfjöllun fjallar um ónæmiskerfi mannsins.
Ónæmiskerfi mannsins er hannað til vernda líkamann gegn sýklum en sýklar eru allar þær örverur sem geta sýkt aðrar lífverur og valdið sjúklegum breytingum í vefjum þeirra[1]. Helstu flokkar sýkla eru veirur, bakteríur, sveppir, frumdýr og önnur sníkjudýr, t.d. ormar sem geta sýkt menn [1][2]. Sýklar geta því verið af mörgum gerðum en þeir eiga allir það sameiginlegt að vera sjúkdómsvaldandi. Í líkama okkar eru þó ekki allar örverur sýklar en góðar bakteríur finnast t.d. á húðinni okkar og í meltingarveginum og eru okkur í sumum tilfellum nauðsynlegar. Reyndar eru flestar bakteríur góðar og það er aðeins örlítið brot þeirra sem eru sýklar [2]. Þessar góðu bakteríur geta þó valdið vandamálum ef þær komast inn í vefi í gegnum rofið yfirborð eða ef ónæmiskerfi líkamans vinnur ekki eðlilega[1].
Ónæmiskerfið er í raun ekki eitt ákveðið kerfi heldur byggist það á samspili mismunandi vefja, líffærakerfa og sérhæfðra fruma og það er hægt að skipta því niður í ósérhæft og sérhæft varnarkerfi. Ósérhæfða varnarkerfið eru almennar varnir líkamans og skiptist í fyrstu varnarlínu sem og aðra varnarlínu. Fyrsta varnarlínan gegn sýklum er ytra yfirborð líkamans en það er húðin og slímhúðin sem þekur öndunar-, meltingar-, þvag-, og æxlunarfæri að innan[3]. Önnur varnarlínan byggist á átfrumum, bólgusvörun, varnarpróteinum og hækkuðum líkamshita og þriðja varnarlínan felur í sér sérhæft ónæmisviðbragð eitilfruma[3].