From Wikipedia, the free encyclopedia
Þilfar eða dekk er á stærri skipum lárétt plata eða gólf sem liggur yfir skipsskrokknum öllum eða að hluta, ver áhöfn og farm fyrir veðri og vindum og er aðalvinnusvæði skipsins. Á stærri skipum geta verið mörg þilför hvert upp af öðru líkt og hæðir í húsi. Sum þilför bera sérstök nöfn eftir því hvert hlutverk þeirra er.
Tilkoma þilskipa með samfellt, vatnsþétt þilfar stafna á milli markaði ákveðið skref í þróun útgerðar. Slík skip var fyrst farið að nota að marki á Íslandi á 19. öld.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.