From Wikipedia, the free encyclopedia
Þróun lífvera felst í breytingum á erfðaeinkennum tiltekins stofns eftir því sem kynslóðum hans vindur fram.[1][2] Erfðaeinkennin eru genatjáning sem flyst frá foreldri til afkvæmis við æxlun. Innan hvers stofns er hægt að finna ólík einkenni vegna stökkbreytinga, endurröðunar erfðavísa og annarra ástæðna erfðabreytileika.[3] Þróun á sér stað þegar þróunarferlar, eins og náttúruval (þar á meðal kynval og genaflökt) hafa áhrif á þennan breytileika þannig að tiltekin einkenni verða algengari eða sjaldgæfari innan stofnsins.[4] Valþrýstingur sem hefur áhrif á það hvaða einkenni verða algeng eða sjaldgæf innan stofns breytist stöðugt, sem veldur breytingum í arfgengum einkennum yfir margar kynslóðir. Þetta ferli hefur skapað líffjölbreytni á öllum stigum líffræðilegrar skipunar, meðal annars tegunda, einstakra lífvera og sameinda.[5][6]
Vísindaleg kenning um þróun með náttúruvali var mótuð um miðja 19. öld bæði af Charles Darwin og Alfred Russel Wallace. Henni var lýst nákvæmlega í bók Darwins, Uppruni tegundanna 1859.[7] Fyrsta athugunin sem sýndi fram á náttúruval var sú staðreynd að fleiri afkvæmi fæðast en gætu með nokkru móti lifað af. Í framhaldi af því koma þrjár staðreyndir um lífverur: (1) einkenni þeirra eru breytileg milli einstaklinga, bæði hvað varðar útlit, líffærafræði og atferli (breytileiki svipgerða), (2) ólík einkenni hafa mismunandi áhrif á afkomu og æxlun (ólík hæfni) og (3) erfðaeinkenni erfast milli kynslóða (arfgengi þessarar hæfni).[8] Eftir því sem kynslóðunum vindur fram er því líklegra að afkvæmi foreldra með hagstæð einkenni sem gerðu þeim kleift að lifa af og eignast afkvæmi í því umhverfi sem stofninn lifir í, hafi tekið við af fyrri kynslóðum. Snemma á 20. öld var öðrum hugmyndum um þróun sem byggðust ekki á náttúruvali, eins og stökkbreytingahyggju og réttstefnuþróun, hafnað þegar þróunarkenning Darwins var samræmd við klassíska erfðafræði og það var staðfest að aðlögun stafaði af náttúruvali.[9]
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.