From Wikipedia, the free encyclopedia
Sáttmáli Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins er alþjóðlegur sáttmáli sem tryggir börnum innan lögsögu aðildarríkjanna tiltekin mannréttindi sem kveðið er á um í texta samningsins. Samningurinn var samþykktur af allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna þann 20. nóvember árið 1989.[1]
Ísland undirritaði sáttmálann þann 26. janúar árið 1990 og fullgilti hann þann 28. október 1992. Sáttmálinn var síðan lögfestur af Alþingi árið 2013 með lögum 19/2013 um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins.[1]
Barnaréttarnefnd Sameinuðu þjóðanna, sem hefur höfuðstöðvar í Genf, hefur eftirlit með framkvæmd samningsins. Aðildarríkjum ber að veita nefndinni reglulegar skýrslur um framkvæmd sáttmálans sem nefndin fer síðan yfir og aflar frekari upplýsinga um frammistöðu viðkomandi ríkis. Upplýsinga er meðal annars aflað frá óháðum félaga- og mannréttindasamtökum. Umboðsmaður barna sendir Barnaréttarnefndinni skýrslu fyrir hönd Íslands.[2]
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.