Sahel

From Wikipedia, the free encyclopedia

Sahel

Sahel (úr arabísku ساحل sahil „strönd“ eða „jaðar“) er svæði í Afríku sem liggur á mörkum Sahara og gróðurlendisins í suðri sem er kallað Súdan. Svæðið er aðallega gresja og nær frá AtlantshafinuHorni Afríku og frá hálfþurru graslendihitabeltisgresju. Á miðöldum risu þarna mörg stór konungsríki sem högnuðust á Saharaversluninni. Sahelsvæðið í Afríku ratar stundum í fréttirnar á Íslandi, oftast vegna þurrka. Sahel er í raun hið víðáttumikla steppusvæði Afríku (norðan miðbaugs) og markast af suðurjaðri Saharaeyðimerkurinnar og hinum frjósömu frumskógum nær miðbaug.

Kort sem sýnir Sahelbeltið í Afríku.

Úrkoma sem fellur á Sahelsvæðið er einkum á regntímanum frá júní og fram í september. Magn úrkomunnar er þó afar breytilegt eftir árum og stundum bregst hún alfarið með tilheyrandi hörmungum. Sahelsvæðið er sunnan Saharaeyðimerkurinnar og í gróðurfarslegu tilliti einkennist það af gras- og runnategundum sem þola vel þurrk. Þar er regntíminn að jafnaði 6-12 vikur á sumri og úrkomumagnið misjafnt frá ári til árs. Þegar úrkoma bregst þá flýr fólk í stórum hópum og verður þá efni frétta af stórum flóttamannabúðum, vannærðum íbúum og deyjandi börnum. Hjálparsamtök hafa unnið mjög gott starf á þessu svæði, en vandinn er meiri og rætur hans dýpri. Íbúar jarðar bera þarna talsverða ábyrgð. Vegna hlýnandi loftslags og ofbeitar á jaðarsvæðum hefur orðið svokölluð eyðimerkurmyndun þar sem eyðimörkin hefur stækkað inn á svæðið og búsvæði íbúa þrengst. Þetta hefur leitt til átaka þegar íbúar að norðan hafa flúið suður á bóginn og farið inn á svæði fólks sem ekki er aflögufært. Þessir fólksflutningar og átök hafa svo aukið vandann.

  Þessi Afríkugrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.

Wikiwand in your browser!

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.

Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.