![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/3/30/Lagarfljot_Jun_2018.jpg/640px-Lagarfljot_Jun_2018.jpg&w=640&q=50)
Lagarfljót
From Wikipedia, the free encyclopedia
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/3/30/Lagarfljot_Jun_2018.jpg/640px-Lagarfljot_Jun_2018.jpg)
Lagarfljót er fljót sem nær frá Brekku Fljótsdal og rennur út Fljótsdal að Héraðsflóa. Í Lagarfljót rennur jökulá sem sem nefnis Jökulsá í Fljótsdal sem á upptök sín úr Eyjabakkajökli. Hún rennur niður Eyjabakka, niður í Norðurdal í Fljótsdal þaðan niður eftir dalnum og út í Lagarfljót[1][2]. Lagarfljót, sem er í daglegu tali heimamanna kallað Fljótið, er 35 km langt, þekur 53 km², og er dýpi þess allt að 112 metrar. Fljótið telst þriðja stærsta og sjötta dýpsta stöðuvatn Íslands. Ósar Lagarfljóts eru við Héraðsflóa og hefur fljótið þar fallið um 140 km langa leið frá upptökum sínum. Lagarfljót er sjötta lengsta á Íslands. Helstu þverár Lagarfljóts eru Kelduá, Grímsá og Eyvindará. Samkvæmt þjóðsögum lifir vatnaskrímslið Lagarfljótsormurinn í fljótinu.
Við Lagarfljót standa meðal annars Egilsstaðir, Fellabær, Hallormsstaður og Eiðar. Hringvegurinn liggur yfir Lagarfljót við Egilsstaði um 301 metra langa brú. Var þessi brú sú lengsta á Íslandi frá því hún var byggð[3] árið 1958 og fram til ársins 1973.
Fljótið er stíflað á tveimur stöðum til raforkuframleiðslu. Fyrst neðan Eyjabakkafoss með 38 metra hárri stíflu sem nefnist Ufsarstífla og er hluti Kárahnjúkavirkjunar og einnig neðar við Lagarfossvirkjun. Með Kárahnjúkavirkjun var rennsli Jökulsár á Brú einnig að mestu veitt yfir í Jökulsá í Fljótsdal sem hefur haft mikil áhrif á rennsli, grugg og hitastig í Lagarfljóti.