Martinique (frönsk antilleyska: Matinik eða Matnik; kalinago: Madinina eða Madiana) er eyja í austanverðu Karíbahafi. Eyjan er hluti af Litlu-Antillaeyjum í Vestur Indíum, norðan við Sankti Lúsíu og sunnan við Dóminíku. Eyjan er eitt af handanhafshéruðum Frakklands.

Staðreyndir strax
Martinique
Thumb Thumb
Fáni Skjaldarmerki
Þjóðsöngur:
La Marseillaise
Thumb
Höfuðborg Fort-de-France
Opinbert tungumál franska
Stjórnarfar Lýðveldi
Forseti Emmanuel Macron
Héraðsforseti Alfred Marie-Jeanne
Franskt handanhafshérað
  Nýlenda1635 
  Handanhafshérað1946 
Flatarmál
  Samtals

1.128 km²
Mannfjöldi
  Samtals (2021)
  Þéttleiki byggðar

375.053
354/km²
VLF (KMJ) áætl. 2015
  Samtals11,09 millj. dala (23. sæti)
  Á mann29.235 dalir
Gjaldmiðill evra
Tímabelti UTC-4
Þjóðarlén .mq
Landsnúmer +596
Loka

Eyjan varð frönsk nýlenda árið 1635. Frakkar ráku frumbyggja eyjarinnar burt árið 1660 og fluttu inn þræla frá Afríku til að vinna þar á plantekrum. Joséphine de Beauharnais, kona Napóleons fæddist á Martinique árið 1763. Hún var dóttir franskra plantekrueigenda. Upphaflega var höfuðborg eyjarinnar Saint-Pierre en bærinn eyðilagðist þegar eldfjallið Mont Pelée gaus 1902 með þeim afleiðingum að 30.000 íbúar létust. Eftir það var höfuðborgin flutt til Fort-de-France.

Líkt og önnur héruð Frakklands er Martinique hluti af Evrópusambandinu og notar evru sem gjaldmiðil. Margir íbúar tala franska antilleysku þótt franska sé opinbert tungumál.

Heiti

Heiti eyjunnar á frönsku, Martinique, er dregið af taínósku heiti hennar, Madiana/Madinina, sem merkir „blómaeyja“, eða Matinino, „kvennaeyja“, samkvæmt Kólumbusi sem sigldi til eyjarinnar árið 1502.[1] Samkvæmt sagnfræðingnum Sydney Daney nefndu Karíbar eyjuna Jouanacaëra eða Wanakaera sem merkir „kembueyja“.[2]

Stjórnmál

Stjórnsýslueiningar

Thumb
Kort sem sýnir sýsluhverfin á Martinique.

Martinique skiptist í fjögur sýsluhverfi (arrondissements) og 34 sveitarfélög (communes). 45 kantónur voru lagðar niður árið 2015. Hverfin eru:

  • Fort-de-France er eina lögsagnarumdæmið á Martinique. Það nær yfir miðhluta eyjarinnar. Þar eru fjögur sveitarfélög og (áður) 16 kantónur. Árið 2013 var íbúafjöldi þar 161.021.[3] Fyrir utan höfuðborgina eru þar bæirnir Saint-Joseph og Schœlcher.
  • La Trinité er eitt af þremur undirumdæmum á eyjunni og nær yfir norðausturhlutann. Þar eru 10 sveitarfélög og 11 kantónur. Árið 2013 voru íbúar 81.475.[3] La Trinité nær yfir bæina La Trinité, Ajoupa-Bouillon, Basse-Pointe, Le Gros-Morne, Le Lorrain, Macouba, Le Marigot, Le Robert og Sainte-Marie.
  • Le Marin, annað undirumdæmið á Martinique, nær yfir suðurhluta eyjarinnar. Þar eru 12 sveitarfélög og (áður) 13 kantónur. Árið 2013 voru íbúar 119.653.[3] Umdæmið nær yfir bæina Le Marin, Les Anses d'Arlet, Le Diamant, Ducos, Le François, Rivière-Pilote, Rivière-Salée, Sainte-Anne, Sainte-Luce, Saint-Esprit, Les Trois-Îlets og Le Vauclin.
  • Saint-Pierre er þriðja undirumdæmið. Þar eru 8 sveitarfélög og (áður) 5 kantónur, á norðvesturhluta eyjarinnar. Árið 2013 voru íbúar 23.402.[3] Ásamt Saint-Pierre eru þar bæirnir Le Carbet, Case-Pilote-Bellefontaine, Le Morne-Rouge og Le Prêcheur.

Tilvísanir

Wikiwand in your browser!

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.

Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.