From Wikipedia, the free encyclopedia
Middelfart er kaupstaður á Fjóni í Danmörku og er íbúafjöldinn um 15.008 (2015). Middelfart er á milli nýju Litlabeltisbrúar og gömlu brúarinnar.
Allt frá miðöldum til loka 19. aldar voru hvalveiðar eða nánar tiltekið veiðar á hnísu stundaðar á þessu svæði. Með því að slá með greinum í vatnsyfirborðið ráku veiðimenn hnísur inn að ströndinni og þar voru dýrin drepin. Hvallýsi var notað til lýsingar bæði inni í húsum og í götulýsingar. Þegar rafmagnframleiðsla hófst var hvalalýsið ekki lengur mikilvæg verslunarvara. Veturinn 1854-1855 voru veiddar 1742 hnísur en annars var venjulegt að vetrarveiðar væru 700-800 dýr. Hnísuveiðarnar voru skipulagðar að fornri hefð sem þekktist allt frá 1593 og allt til 1899.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.