bandarískur leikari og kvikmyndagerðarmaður (1915-1985) From Wikipedia, the free encyclopedia
George Orson Welles (6. maí 1915 – 10. október 1985) var bandarískur leikari, leikstjóri, rithöfundur og framleiðandi sem vann í leikhúsi, útvarpi og í kvikmyndum. Hann var frumkvöðull í öllum þremur miðlunum: Á leiksviðinu var hann meðal annars þekktur fyrir útfærslu sína á leikritinu Júlíus Sesar eftir William Shakespeare á Broadway (1937), í útvarpinu fyrir útvarpsleikritið Innrásina frá Mars[1] (1938) og á hvíta tjaldinu fyrir kvikmyndina Citizen Kane (1941) sem gjarnan er talin ein besta mynd allra tíma.
Orson Welles | |
---|---|
Fæddur | 6. maí 1915 |
Dáinn | 10. október 1985 (70 ára) Los Angeles, Kaliforníu, Bandaríkjunum |
Störf | Leikari, leikstjóri, framleiðandi, handritshöfundur |
Maki | Virginia Nicolson (gift 1934–1940) Rita Hayworth (gift 1943–1947) Paola Mori (gift 1955–1985) |
Undirskrift | |
Á þrítugsaldri leikstýrði Welles ýmsum ríkisstyrktum uppsetningum, þ. á m. uppsetningu á Makbeð með svörtum leikurum og pólitíska söngleiknum The Cradle Will Rock. Árið 1937 stofnaðu þeir John Houseman Mercury-leikhúsið, sjálfstætt leikfélag sem setti upp ýmsar sýningar á Broadway til ársins 1941. Welles öðlaðist frægð bæði innanlands og erlendis sem leikstjóri og sögumaður útvarpsleikritsins Innrásarinnar frá Mars, sem byggt var á samnefndri bók eftir H. G. Wells. Leikritið þótti svo raunverulegt að margir héldu að innrás úr geimnum stæði í raun yfir og óttuðust um líf sitt. Sumar samtímaheimildir greina frá því að frásagnir um ofsahræðslu hlustenda hafi verið ýktar[2] en þó gerði útsendingin Welles að stjörnu.
Fyrsta kvikmynd Welles var Citizen Kane (1941), sem hann skrifaði, framleiddi og leikstýrði og lék aðalhlutverk titilpersónunnar Charles Foster Kane. Welles var utangarðsmaður í Hollywood-stúdíókerfinu og átti aðeins eftir að leikstýra 13 kvikmyndum í fullri lengd á ferli sínum. Hann barðist í sífellu fyrir að viðhalda stjórn á verkefnum sínum frá kvikmyndaframleiðendunum og seinna frá ýmsum sjálfstæðum fjárfestum. Margar myndir hans voru aldrei fullgerðar eða gefnar út. Leikstjórnarstíll Welles var sérstæður: Í verkum hans eru atriði sögunnar oft ekki sagð í línulaga tímaröð, skil á milli skugga og ljóss eru afar skörp líkt og á olíumálverkum, sjónarhorn myndavélarinnar eru einkennileg og margar hljóðbrellur úr útvarpi notaðar. Welles hefur verið lýst sem auteur, eða sjálfstæðum listamanni sem viðhélt stjórn á öllum öngum verka sinna.[3]
Welles gerði 12 kvikmyndir á eftir Citizen Kane. Myndirnar The Magnificent Ambersons (1942), Touch of Evil (1958) og Chimes at Midnight (1966) þykja meðal hans bestu verka, en myndirnar The Lady from Shanghai (1947)[4] og F for Fake (1973)[5] eru einnig hátt skrifaðar.
Árið 2002 var Welles kjörinn besti kvikmyndaleikstjóri allra tíma í tveimur skoðanakönnunum bresku kvikmyndastofnunarinnar meðal leikstjóra og gagnrýnenda.[6][7] Welles var þekktur fyrir djúpa rödd sína[8] og lék í fjölmörkum Shakespeare-leikritum, útvarpsútsendingum auk þess sem hann var flinkur töframaður.
Ár | Upprunalegur titill | Íslenskur titill | Titlaður sem | Athugasemdir | ||
---|---|---|---|---|---|---|
Leikstjóri | Handritshöfundur | Framleiðandi | ||||
1941 | Citizen Kane | Blaðakóngurinn | Já | Já | Já | |
1942 | The Magnificent Ambersons | Dýrðardagar Amberson-fjölskyldunnar | Já | Já | Já | |
1943 | Journey into Fear | Í greipum dauðans | Nei | Já | Ótitlaður | Einnig ótitlaður aðstoðarleikstjóri |
1946 | The Stranger | Stríðsglæpamaðurinn | Já | Ótitlaður | Nei | |
1947 | Monsieur Verdoux | Nei | Saga | Nei | ||
The Lady from Shanghai | Konan frá Sjanghaí | Ótitlaður | Já | Já | ||
1948 | Macbeth | Já | Ótitlaður | Nei | ||
1951 | Othello | Óþelló | Já | Já | Já | |
1955 | Mr. Arkadin | Já | Já | Nei | Einnig listrænn stjórnandi, búningahönnuður og ótitlaður klippari | |
1958 | Touch of Evil | Hin blindu augu lögreglunnar | Já | Já | Nei | |
1962 | The Trial | Já | Já | Nei | Einnig ótitlaður klippari | |
1966 | Chimes at Midnight | Miðnæturómar | Já | Já | Nei | Einnig búningahönnuður |
1968 | The Immortal Story | Já | Já | Nei | Frönsk sjónvarpsmynd sýnd í kvikmyndahúsum í sumum löndum, m.a. Bandaríkjunum | |
1973 | F for Fake | Já | Já | Nei | Heimildamynd • Einnig ótitlaður klippari | |
1978 | Filming Othello | Já | Já | Nei | Heimildamynd | |
1992 | Don Quixote | Já | Já | Já | Upphaflega kvikmynduð milli 1957 og 1972 • Fullkláruð og útgefin eftir dauða Welles í breyttri útgáfu í leikstjórn Jesus Franco | |
1999 | The Big Brass Ring | Nei | Já | Nei | ||
2018 | The Other Side of the Wind | Já | Já | Já | Einnig klippari með Bob Murawski • Upphaflega kvikmynduð milli 1970 og 1976 • Fullkláruð og útgefin eftir dauða höfundar |
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.