From Wikipedia, the free encyclopedia
Pebble er snjallúr þróað af Pebble Technology Corporation.[1] Það var fyrsta sinnar tegundar sem kom á markað og virkaði bæði fyrir Android og iOS stýrikerfið.[2] Fyrsta útgáfan kom út árið 2013 og var hún fjármögnuð í gegnum Kickstarter. Úrið er með baklýstum 1,26 tommu rafeindapappírsskjá og fæst í tveimur útgáfum: Pebble og Pebble Steel. Úrin eru með svipaða virkni, tengjast bæði símanum í gegnum Bluetooth, skilaboð, tölvupóstur, símtöl og tilkynningar frá samfélagsmiðlum birtast á skjánum, en úrin titra einnig þegar skilaboð berast á samtengdu tækni.
Pebble Steel var kynnt til sögunnar á CES-ráðstefnunni árið 2014. Úrið er þynnra, og er ytra lag úrsins úr ryðfríu stáli. Úrið kemur með leður ól en einnig er hægt að fá ól úr ryðfríu stáli. Úrið er vatnshelt niður að 50m og ólíkt öðrum snjallúrum þar sem rafhlaðan endist í allt að 7 daga.[3]
Pebble-verkefnið byrjaði út fra Kickstarter-söfnun sem sett var á stað árið 2012. Eric Migicovsky hóf Kickstarter söfnunina þann 11. apríl 2012 með það markmið að safna $100.000. Þeir sem ákváðu að styrkja verkefnið um að minnsta kosti $115 áttu að fá Pebble úr þegar framleiðsla hæfist. Eftir einungis tvær klukkustundir var búið að fjármagna framleiðsluna og innan sex daga var þetta orðin stærsta fjármögnun Kickstarter og búið að styrkja Migicovsky um $4,7 milljónir. Þegar fjármögnun verkefnisins lauk þann 18. mai 2012 var búið að safna $10,3 milljónum.[4]. Hægt er að skoða Kickstarter síðuna hérna.
Upphæð | |
---|---|
$99 | Early Bird: 200 svört úr í boði |
$115 | Eitt svart Pebble úr |
$125 | Eitt litað Pebble úr |
$220 | Tvö svört Pebble úr |
$235 | Prototype Pebble fyrir þróun á forritum + eitt litað Pebble |
$240 | Tvö lituð Pebble úr |
$550 | Fimm lituð Pebble úr |
$1000 | Tíu lituð Pebble úr |
$1250 | Sérhannað útlit + fimm lituð Pebble úr |
Samtals voru 68.929 einstaklingar sem styrktu verkefnið fyrir samtals $10.266.845.[5]
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.