Yuan Shikai
From Wikipedia, the free encyclopedia
Yuan Shikai (袁世凱; 16. september 1859 – 6. júní 1916) var kínverskur stríðsherra og stjórnmálamaður sem naut mikilla áhrifa á síðustu árum Tjingveldisins á valdaárum Cixi keisaraekkju. Hann lék lykilhlutverk í afsögn síðasta Tjing-keisarans, Puyi, og réð síðan með alræðisvaldi sem fyrsti formlegi forseti Lýðveldisins Kína frá 1912 til 1915 og aftur árið 1916. Þess á milli reyndi Yuan að endurreisa keisaraveldi í Kína með því að taka sér sjálfur keisaratign sem Hongxian-keisarinn (洪憲皇帝). Yuan naut þó ekki almennrar viðurkenningar sem keisari og er yfirleitt ekki hafður með í talningum á keisurum Kína.
- Þetta er kínverskt nafn: kenni- eða fjölskyldunafnið er Yuan, eiginnafnið er Shikai.
Staðreyndir strax Forseti Lýðveldisins Kína, Forsætisráðherra ...
Yuan Shikai 袁世凱 | |
---|---|
Forseti Lýðveldisins Kína | |
Í embætti 10. mars 1912 – 12. desember 1915 | |
Forsætisráðherra |
|
Varaforseti | Li Yuanhong |
Forveri | Sun Yat-sen (til bráðabirgða) |
Eftirmaður | Hann sjálfur sem keisari |
Í embætti 22. mars 1916 – 6. júní 1916 | |
Forsætisráðherra | Xu Shichang Duan Qirui |
Varaforseti | Li Yuanhong |
Forveri | Hann sjálfur sem keisari |
Eftirmaður | Li Yuanhong |
Keisari Kína | |
Í embætti 12. desember 1915 – 22. mars 1916[1] | |
Forveri | Hann sjálfur sem forseti |
Eftirmaður | Hann sjálfur sem forseti |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 16. september 1859 Xiangcheng, Kína |
Látinn | 6. júní 1916 (56 ára) Peking, Kína |
Börn | 32 |
Starf | Stjórnmálamaður, herforingi |
Undirskrift |
Loka