AMD
From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Advanced Micro Devices, Inc. (eða AMD; NYSE: AMD) er bandarískt fyrirtæki sem framleiðir örgjörva og myndgjörva (GPU), FPGA og áður hálfleiðara. Öll framleiðslan er byggð á hálfleiðurum, og áður átti AMD eigin verksmiðjur líkt og helsti samkeppnisaðilinn, Intel. Seinna urðu verksmiðjur fyrirtækisins að fyrirtækinu GlobalFoundries sem framleiðir hálfleiðara fyrir ýmis fyrirtæki.
Remove ads
AMD var stofnað af Jerry Sanders og fleiri tæknimönnum árið 1969. Aðalframleiðsluvörur fyrirtækisins voru í fyrstu minnisrásir og aðrir íhlutir fyrir tölvur. Árið 1975 hóf AMD innreið sína á örgjörvamarkaðinn í samkeppni við Intel. Snemma á 21. öld óx fyrirtækið hratt. Það naut sterkrar stöðu á einkatölvumarkaðnum með örgjörva á borð við Athlon og Opteron. Síðar lenti fyrirtækið í erfiðleikum þar sem því gekk illa að halda í við hraða þróun á markaðnum. Það rétti úr kútnum seint á 2. áratug 21. aldar með innrásarverðlagningu og velgengni Ryzen-örgjörvanna.[1] Árið 2022 tók AMD í fyrsta sinn fram úr Intel í markaðsvirði.[2][3]
Remove ads
Tilvísanir
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads