Adrian Newey

From Wikipedia, the free encyclopedia

Adrian Newey
Remove ads

Adrian Martin Newey (f. 26. desember, 1958) er breskur verkfræðingur sem hefur starfað hjá Formúlu 1 liðum allt frá árinu 1988 við að hanna bíla. Newey byrjaði hjá March liðinu og vann sig upp sem tæknistjóri liðsins árið 1990. Liðið hafði þá breytt um nafn á sama ári og hét Leyton House. Tímabilið gekk ekki eins vel og menn vonuðust innan liðsins og Newey var rekinn um sumarið. Ári seinna fékk Newey starf hjá Williams og vann þar náið með Patrick Head tæknistjóra liðsins. Newey var hjá Williams til ársins 1996 og árangur liðsins á þeim tíma sem Newey var þar var mjög góður. Williams urðu 4 sinnum heimsmeistarar bílasmiðja á þeim 6 árum sem Newey var hjá liðinu. Fyrst árið 1992, síðan 1993, 1994 og 1996.[1]

Staðreyndir strax Fæddur, Þjóðerni ...

Newey skipti til McLaren árið 1997 frá Williams. Þar var hann til ársins 2005 og liðið vann einu sinni heimsmeistari bílasmiðja og það var árið 1998. Mika Häkkinen var hjá McLaren á nokkrum á þeim árum og var 2 sinnum heimsmeistari í Formúlu 1 1998 og 1999. Newey fór til Red Bull Racing árið 2006 og var þar til ársins 2025. Red Bull Racing varð 6 sinnum orðið heimsmeistari bílasmiðja á þeim tíma sem Newey var hjá liðinu, 2010, 2011, 2012, 2013, 2022 og 2023. Newey er núna hjá Aston Martin eftir að hafa skrifað undir samning hjá þeim í september árið 2024 og hóf störf í mars árið 2025. [2]

Remove ads

Tilvísanir

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads