Gráelri
From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Gráelri (Alnus incana) er meðalstórt tré af birkiætt. Það verður 15-20 metra hæst og vaxtalag er frá margstofna tré eða runna til einstofna trés með keilulaga krónu. Tréð hefur svepprót eins og önnur elri.
Remove ads
Undirtegundir
Undirtegundir eru 4-6 talsins. Sumir líta á einstakar undirtegundir sem sér tegund.
- Alnus incana subsp. incana: Gráelri. — Norður-Evrópa, í fjöllum mið- og suður-Evrópu og norðaustur-Asíu.
- Alnus incana subsp. hirsuta: Hæruölur - Í fjöllum mið- og norðaustur Asíu.
- Alnus incana subsp. kolaensis — Norðaustur-Evrópa.
- Alnus incana subsp. oblongifolia - Suðvestur-Bandaríkin og norður-Mexíkó.
- Alnus incana subsp. rugosa: Vætuölur - Kanada og norðausturhluti Bandaríkjanna.
- Alnus incana subsp. tenuifolia: Blæelri - Vesturhluti Norður-Ameríku.
Remove ads
Á Íslandi
Gráelri verður allt að 15 metrar á Íslandi. Það blómstrar reklum snemma vors og blóm skemmast oft í vorfrostum sem dregur úr frætekju. Þrátt fyrir það er kal á sprotum sjaldgæft. Norsk og finnsk kvæmi eru vel aðlöguð íslenskum aðstæðum. Blæelri hefur einnig verið reynt á Íslandi. Reynsla er lítil en blæelri er hraðvaxnara en evrópska systurtegund sín. [2]
- Lauf gráelris
- Stofn.
- Könglar.
- Reklar.
- Á Austurvelli eru stæðileg gráelri( til hægri).
Remove ads
Tilvísanir
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads