Apahrellir

Trjátegund í flokki barrtrjáa From Wikipedia, the free encyclopedia

Apahrellir
Remove ads

Apahrellir (Araucaria araucana) er sígrænt suður-amerískt barrtré af fornri barrtrjáaætt Araucariaceae, sem finnst nánast einungis á suðurhveli.

Staðreyndir strax Vísindaleg flokkun ...
Thumb
Fullorðið tré í Royal botanical gardens, Edinborg
Thumb
Apahrellir um vetur (í Gerðunum í Reykjavík
Thumb
Greinar á fullorðnu tré
Thumb
Ungur apahrellir
Remove ads

Útbreiðsla og lýsing

Vaxtarsvæði þess er í hlíðum mið- og suður- Andesfjalla Chile og Argentínu í u.þ.b. 600-1800 metrum yfir sjávarmáli og á suðlægu breiddargráðunum 37-40°. Hæð apahrellis getur orðið allt að 30-40 metrar. Það vex hægt en getur náð miklum aldri; yfir 1300 ára [1]. Apahrellir myndar engin brum heldur hættir að vaxa þegar kólnar og byrjar að vaxa aftur þegar hlýnar. Trén verða kynþroska um 40 ára aldurinn. Börkurinn er grábrúnn og raðast barr reglulega í kringum hann.

Nálarnar eru þykkar, mjög beittar og svipar til kaktusa. Könglarnir eru kringlóttir og stórir. Fræin eru einnig mikil um sig og hafa verið notuð af frumbyggjum í fæðuöflun. Trén skiptast í karl- og kventré með aflöngum karlkönglum og kringlóttum hærðum kvenkönglum. Hver köngull er með um 200 fræ og hvert fræ um 4 cm að lengd. Frjóvgun fer fram með vindi.

Tréð er það harðgerðasta sinnar ættar og getur þolað allt að 20 stiga frost. Það hefur verið ræktað með góðum árangri í Evrópu þar á meðal Bretlandi, Noregi og Færeyjum. Þar er það ræktað í hafrænu loftslagi. Bretar fluttu tréð inn á seinni hluta 18. aldar og Skandinavar á miðri 19. öld. Apahrellir er þjóðartré Síle. Alþjóðlegu Náttúruverndarsamtökin IUCN telja tréð í útrýmingarhættu.[2]

Remove ads

Nafn

Nafnið apahrellir (e. monkey puzzle) er tilkomið vegna ummæla Charles Austin, bresks lögræðings á 19. öld þegar hann sá tréð í Englandi í fyrsta skipti. Kom honum til hugar að apakettir gætu ekki klifið það hæglega. Þó lifa ekki apakettir ekki á útbreiðslusvæði trésins. Fræðiheitið (araucaria araucana) vísar til héraðsins Araucanía í Chile. Enn annað heiti á því er pehuén, nafn sem Mapuche frumbyggjar kalla það.

Remove ads

Tenglar

Heimild

  • Anna Lewington (2012). Ancient Trees: Trees That Live for a Thousand Years. Anna Lewington. Batsford Ltd.

Tilvísanir

Loading content...
Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads