Betula cordifolia

From Wikipedia, the free encyclopedia

Betula cordifolia
Remove ads

Betula cordifolia er tegund af birkiætt[1] ættuð frá austur Kanada og New England United States. Þar til nýlega hefur hún verið talið undirtegund af Betula papyrifera (næfurbjörk), sem hún líkist að mörgu leyti, og var hún skráð sem B. papyrifera var. cordifolia (Regel) Fern.[2]

Staðreyndir strax Vísindaleg flokkun, Tvínefni ...
Remove ads

Lýsing

Betula cordifolia lauffellandi tré sem verður um 25 m hátt og með um 70 sm í þvermál stofns.[3] Börkur á fullorðnum trjám er hvítur eða bronslitaður, og flagnar af í þunnum næfrum. Innan á berkinum er hann koparlitur og uá ungum trjám er börkurinn gljáandi brúnn með fölbrúnum loftaugarákum. Blöðin eru stakstæð, egglaga, 6 til 12 sm löng, og tvítennt. Eins og seinni hluti fræðiheitisins bendir til, þá eru grunnur blaðanna yfirleitt hjartalaga, hinsvegar getur það verið villandi því grunnurinn er stundum rúnnaður eða flatur. Blöðin eru með mikið af kvoðukirtlum og brumin eru egglaga og sljó. Árssprotarnir eru gulbrúnir til dökkbrúnir og flekkóttar af kvoðukirtlum og gráleitum loftaugarásum.[2] Þá vantar hæringuna sem er á Betula papyrifera.[4] Blómin eru reklar, karlreklarnir eru 24 sm langir og kvenreklarnir 12 dm langir. Fullþroskaðir eru þeir um 35 sm langir og fræin eru vængjuð, 23 mm löng.[3]

Remove ads

Útbreiðsla

Betula cordifolia finnst í austur Kanada, Quebec, norðvestur Ontario, norður New York-fylki, og Nýja Englandi. Hún finnst helst norðan til eða hærra yfir sjó, gjarnan í rökum jarðvegi.[2]

Greining frá Betula papyrifera

Betula cordifolia og Betula papyrifera eru mjög líkar tegundir, og voru eitt sinn taldar sama tegundin. Aðal aðferðirnar til að greina þær í sundur eru:

  • Betula cordifolia er eingöngu í austurhluta Norður Ameríku[2]
  • Blöðin eru þakin kvoðukirtlum[2][3]
  • Grunnur blaðanna er hjartalaga[2][3][4]
  • Sprotarnir eru ekki hærðir.[4]
  • Er tvílitna (28 litningar)[2]


Þar sem mörg af þessum einkennum eru breytileg frá tré til trés, er best að athuga sem flest af þessum atriðum áður en greining er ákveðin. Þá er líklegt að Betula cordifolia og Betula papyrifera blandist,[4] hinsvegar eru líklega sjaldgæft þar sem litningatalan er mismunandi.

Tilvísanir

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads