Birkir Már Sævarsson

íslenskur knattspyrnumaður From Wikipedia, the free encyclopedia

Birkir Már Sævarsson
Remove ads

Birkir Már Sævarsson (fæddur 11. nóvember 1984) er íslenskur fyrrum knattspyrnumaður. Birkir hóf ferilinn hjá Val. Síðar fór hann til SK Brann í Noregi. Birkir spilaði með Hammarby IF í Svíþjóð þar til hann sneri aftur til uppeldisfélagsins Vals.

Staðreyndir strax Upplýsingar, Meistaraflokksferill1 ...
Thumb
Birkir Már gegn Austurríki árið 2014.

Birkir er hægri bakvörður og spilaði með karlalandsliði Íslands frá 2007 til 2021. Hann skoraði sitt fyrsta mark fyrir landsliðið gegn Liechtenstein árið 2016 með þrumufleyg af löngu færi.

Birkir spilaði sinn 100 leik með A-landsliðinu í september 2021 og ákvað að hætta eftir sinn 103. landsleik þegar undankeppnin fyrir HM 2022 lauk. Hann lagði fótboltaskóna á hilluna árið 2024. [1]

Birkir á fjögur börn. Hann hlustar meðal annars á þungarokk í frístundum. [2]

Remove ads

Tilvísanir

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads