Borgaraflokkurinn

From Wikipedia, the free encyclopedia

Borgaraflokkurinn
Remove ads

Borgaraflokkurinn var íslenskur stjórnmálaflokkur sem stofnaður var árið 1987 af Alberti Guðmundsyni sem áður hafði verið þingmaður og ráðherra Sjálfstæðisflokksins. Albert stofnaði flokkinn í kjölfar þess að forysta Sjálfstæðisflokksins gerði honum að segja af sér sem iðnaðarráðherra vegna aðkomu að Hafskipsmálinu.

Staðreyndir strax Borgaraflokkurinn ...
Borgaraflokkurinn var líka heiti á kosningabandalagi Sparnaðarbandalagsins og Sjálfstæðisflokksins eldra fyrir kosningarnar 1923.

Borgaraflokkurinn náði sjö þingmönnum í kosningunum 1987. Meðal þeirra voru feðgarnir Albert Guðmundsson og Ingi Björn Albertsson.[1] Albert og Ingi Björn eru einu feðgarnir, sem hafa setið samtímis á Alþingi.

Aðrir þingmenn Borgaraflokksins voru Guðmundur Ágústsson, Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir, Júlíus Sólnes, Hreggviður Jónsson og Óli Þ. Guðbjartsson.

Árið 1989 gerðist Albert sendiherra í París og í framhaldi af því ákvað flokkurinn, undir formennsku Júlíusar Sólnes, að taka þátt í vinstriríkisstjórn Steingríms Hermannssonar ásamt Alþýðuflokki og Alþýðubandalagi. Ráðherrar flokksins urðu Júlíus Sólnes, sem var fyrsti umhverfisráðherrann og Óli Þ. Guðbjartsson, sem var dómsmálaráðherra.

Við það sögðu tveir þingmenn flokksins (Ingi Björn Albertsson og Hreggviður Jónsson) sig úr honum og mynduðu eigin þingflokk, sem nefndist Frjálslyndi hægri flokkurinn en þingmennirnir gengu svo báðir í Sjálfstæðisflokkinn árið 1990.

Borgaraflokkurinn bauð fram í kosningunum 1991 en þó ekki undir eigin nafni heldur sem „Frjályndir“ og með listabókstafinn F. Að framboðinu komu einnig einstaklingar sem ekki voru í Borgaraflokknum.[2] Framboðið náði ekki inn manni inn með einungis 1,2% atkvæða og var Borgaraflokkurinn lagður niður árið 1994.

Remove ads

Tengt efni

Tilvísanir

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads