Chichewa
From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Chichewa (eða Cinyanja) er tungumál í Bantúmálafjölskyldunni og jafnframt opinbert tungumál í Malaví. Málið er einnig talað í Sambíu, Mósambík og Simbabve. Forskeytið chi- (einnig skrifað ci-) merkir tungumál og er því oft talað um Chewa eða Nyanja. Chingoni (Ngoni) og Chikunda (Kunda) eru mállýskur þess.
Remove ads
Remove ads
Dreifing
Chichewa er opinbert tungumál í Malaví ásamt því að það er talað í nokkrum ættbálkum í austurhluta Sambíu. Í Mósambík er málið talað í Tété og Niassa-héröðunum og í Simbabve er tungan þriðja útbreiddust í landinu, á eftir Shona og Ndebele.
Saga
Málið kemur frá veldi Marava, sem var uppi á 15. til 18. öld og náði yfir allt Malaví og hluta Mósambík og Sambíu. Eftir að veldið splundraðist hélt tungumálið velli og kristnir trúboðar tóku m.a. tunguna þegar þeir komu inn á svæðið. Fyrsta málfræðibókin á Chewa var skrifuð uppúr 1880 af Alexander nokkrum.
Tengill
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads