Dakar

höfuðborg Senegal From Wikipedia, the free encyclopedia

Dakarmap
Remove ads

Dakar er höfuðborg Senegal. Íbúar borgarinnar eru um 1,3 milljón.[1] Borgin stendur á Grænhöfða á vesturströnd Senegal. Hún var stofnuð árið 1857 og hafði þá myndast utanum franskt virki á höfðanum. Hún óx hratt sem mikilvægur áfangastaður í versluninni við Evrópu og yfir Atlantshafið

Staðreyndir strax Land, Flatarmál ...
Remove ads

Heiti

Nafnið Dakar kemur fyrst fram á korti sem franski bótanistinn Michel Adanson gerði árið 1750 af Cap-Vert eða Grænhöfða.

Dakar gæti verið frönsk útgáfa af ndakarou úr frumbyggjamáli, en orðsifjar borgarinnar eru enn ekki taldar vissar. Hugsanlega frá máltæki úr wolof deuk raw sem merkir það sem þar setur sig niður mun vera látið í friði, eða frá dekk-raw, þar sem dekk merkir land og raw sleppa og þá einskonar flóttasvæði.

Ennfremur gæti heitið verið leitt af dakhar úr wolof, sem merkir tamarinier-tré, en mikið er af þeim á svæðinu.

Remove ads

Tilvísanir

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads