Danny Ings
From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Daniel William John Ings (fæddur 1992) er enskur knattspyrnumaður sem spilar fyrir enska liðið Sheffield United.
Ings hóf ferilinn sem drengur hjá Southampton en fór svo til nágrannanna í AFC Bournemouth. Árið 2011 hélt hann til Burnley FC og var valinn leikmaður ensku meistaradeildarinnar tímabilið 2013-2014. Jafnframt komst liðið í ensku úrvalsdeildina en féll jafnharðan aftur. Ings hafði klárað samninginn við Burnley og vakti áhuga Liverpool FC. Tíminn þar einkenndist af meiðslum en náði hann aldrei að blómstra þar. Hins vegar hélt Ings til Southampton 2018 hefur verið á skotskónum þar. Hann varð markakóngur deildarinnar 2019-2020 ásamt Pierre-Emerick Aubameyang með 22 mörk og þriðji leikmaður Southampton til að skora fleiri en 20 mörk í úrvalsdeildinni (hinir eru Matt Le Tissier og James Beattie). Ings gerði 3 ára samning við Aston Villa sumarið 2021. Hann fór svo til West Ham í janúar 2023.
Ings hóf landsliðsferilinn með aðalliði Englands árið 2015 með einum leik en spilaði ekki aftur þangað til árið 2020 og skoraði sitt fyrsta mark gegn Wales. Hann kom inn sem varamaður í seinni hálfleik gegn Íslandi þegar Englendingar unnu 1-0 í Þjóðadeildinni.
Remove ads
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads
