Liverpool (knattspyrnufélag)
knattspyrnufélag á Englandi From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Liverpool Football Club er enskt knattspyrnufélag sem var stofnað árið 1892 og hefur spilað á Anfield, Liverpool frá upphafi. Liðinu er nú stjórnað af Hollendingnum Arne Slot.
Liverpool hefur unnið 20 titla í efstu deild, 8 FA-bikara, 9 deildarbikara, 15 samfélagsskildi. Í Evrópu hefur liðið unnið 3 Europa League titla, 6 Meistaradeildartitla, 4 ofurbikara. Auk þess vann félagið 1 FIFA Club World Cup.
Félagið varð Englandsmeistari árið 2020 í fyrsta skipti í 30 ár undir stjórn Jürgen Klopp og vann Meistaradeild Evrópu árið 2019. Klopp kom liðinu þrisvar í úrslitaleik Meistaradeildarinnar.
Eftir nær 3 og hálft ár þar sem félagið tapaði ekki leik á Anfield þá tapaði það 6 leikjum í röð tímabilið 2020-2021 sem er met.
Á 8. og 9. áratugunum var sigurganga liðsins mikil, knattspyrnustjórar eins og Bill Shankly, Bob Paisley, Joe Fagan og Kenny Dalglish færðu liðinu 11 titla og 4 Evrópubikara. Helsti rígur liðsins er gegn Manchester United og Everton. Lag liðsins og slagorð er "You'll Never Walk Alone" sem var frægt með hljómsveitinni Gerry and the Pacemakers á 6. áratug 20. aldar.

Remove ads
Titlar
- Enska úrvalsdeildin og gamla enska fyrsta deildin) 20
- 1900-01, 1905-06, 1921-22, 1922-23, 1946-47, 1963-64, 1965-66, 1972-73, 1975-76, 1976-77, 1978-79, 1979-80, 1981-82, 1982-83, 1983-84, 1985-86, 1987-88, 1989-90, 2019-20, 2024-2025
- Enska önnur deildin 3
- 1893-94, 1895-96, 1904-05, 1961-62
- Enski bikarinn 8
- 1964, 1974, 1986, 1989, 1992, 2001, 2006, 2022
- Enski deildabikarinn 10
- 1981, 1982, 1983, 1984, 1995, 2001, 2003, 2012, 2022, 2024
- Meistaradeild Evrópu 6
- 1977, 1978, 1981, 1984, 2005, 2019
- Evrópukeppni félagsliða (UEFA Cup) 3
- 1973, 1976, 2001
- Evrópski ofurbikarinn 4
- 1977, 2001 ,2005, 2019
- Góðgerðaskjöldurinn/Samfélagsskjöldurinn 16
- 1964*, 1965*, 1966, 1974, 1976, 1977*, 1979, 1980, 1982, 1986*, 1988, 1989, 1990*, 2001, 2006, 2022
- Heimsmeistaramót félagsliða 1
- 2019
(* sameiginlegir sigurvegarar)
Remove ads
Rígar
Rígurinn við Manchester United
Liverpool á í miklum ríg við Manchester United og er rígurinn á milli liðanna einn sá stærsti í Evrópu. Þessi rígur hefur haldist lengst af öllum rígum í sögu enska boltans. Rígurinn er nánast jafn gamall liðunum sjálfum því borgirnar eru aðeins í 50km fjarlægð hvor frá annari. Manchester var mikil iðnaðarborg á meðan Liverpool var hafnarborg og mismunandi menning borganna leiddi til metings og rígs á milli íbúanna sem birtist í leikjum Liverpool og Manchester United. Árið 1887 hófu nokkrir athafnamenn í Manchester að grafa skipaskurð til sjávar þrátt fyrir andstöðu stjórnmálamanna í Liverpool sem sáu fram á að höfnin þar myndi missa viðskipti. Skurðurinn jók óvildina sem var nú þegar á milli íbúa borganna.
Fótboltabullur á meðal stuðningsmanna beggja liða hika ekki við að nota harmleiki úr sögu liðanna til að láta í ljós fyrirlitningu á andstæðingnum. Til dæmis má heyra stuðningsmenn Manchester United syngja níðsöngva um harmleikinn við Hillsborough og eins syngja stuðningsmenn Liverpool stundum söngva um flugslysið í München í febrúar 1958.[1]
Remove ads
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads