Ella Fitzgerald
From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Ella Fitzgerald (25. apríl 1917 – 15. júní 1996) var bandarísk djasssöngkona sem hafði gríðarleg áhrif á djasssöng á 20. öld. Hún hlaut þrettán Grammy-verðlaun á ferli sínum. Ella byrjaði snemma að syngja. Þegar hún var 16 ára gömul tók hún þátt í samkeppni ungra söngvara á Apollo leikhúsinu í New York. Um þær mundir heyrði trommuleikarinn og hljómsveitarstjórinn Chick Webb hana syngja, og réð hana til að koma fram með hljómsveit sinni.

Remove ads
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads