Forseti Sovétríkjanna

From Wikipedia, the free encyclopedia

Forseti Sovétríkjanna
Remove ads

Forseti Sovétríkjanna var þjóðhöfðingi Sovétríkjanna frá 15. mars 1990 til 25. desember 1991. Eini maðurinn sem gengdi þessu embætti var Míkhaíl Gorbatsjov. Fyrir stofnun þessa embættis var forseti forsætisnefndar Sovétríkjanna í reynd þjóðhöfðingi en stjórnarleiðtogi var aðalritari Sovéska kommúnistaflokksins. Gorbatsjev var aðalritari flokksins á sama tíma og hann var forseti og skapaði þannig forsetaræði í reynd. Hann sagði af sér sem aðalritari í kjölfar valdaránstilraunarinnar 1991.

Staðreyndir strax Forseti Sambandsríkis sósíalískra sovétlýðvelda Президент Союза Советских Социалистических Республик, Gerð ...

Upphaflega var forsetinn kosinn af fulltrúaþingi Sovétríkjanna og átti að vera forseti þess, en í framtíðinni var hugmyndin að hann yrði kosinn í almennum kosningum. Gennadíj Janajev var varaforseti og líka sá eini sem gegndi því embætti.

Remove ads

Neðanmálsgreinar

  1. Settur af frá 19. til 21. ágúst 1991 í ágústvaldaráninu.
  2. Embættisskyldur færðar til aðalritara Samveldis sjálfstæðra ríkja og forseta Rússlands.

Tilvísanir

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads