Geislaskammtur

From Wikipedia, the free encyclopedia

Remove ads

Geislaskammtur er mælikvarði á þá orku sem gleypist í tilteknum massa af lifandi vef vegna jónandi geislunar. SI-mælieiningin fyrir geislaskammt er grei, táknuð með Gy, þannig að 1 Gy jafngildir 1 J·kg-1 (eldri mælieining er rad, þar sem 1 rad = 0,01 Gy). Mælieiningin er dregin af nafni enska eðlisfræðingsins Louis Harold Gray.[1] Raffræðilegur geislaskammtur, mældur með einingunni röntgen sem er táknuð með R, er sá geislaskammtur af röntgen- eða gammageislum sem myndar einingarskammt af já- og neikvæðum jónum í hverju kílógrammi af lofti. (1 R = 2,58·10-4 C/kg). Mælieininingin röntgen er ekki SI-eining.

Í geislameðferð við krabbameini er oftast gefinn ákveðinn, lágur geislaskammtur á kjörmeðferðarsvæði í 4 til 6 vikur. Öfugt við geislaskammt tekur geislaálag tillit til líffræðilegra áhrifa geislunar.

Remove ads

Tilvísanir

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads