Halógen

From Wikipedia, the free encyclopedia

Remove ads

Halógen (eða söltungur, saltmyndarar, frá grísku hals sem þýðir „salt“ og gen „fæðir af sér“) eru hópur efna í flokki 17 í lotukerfinu. Í honum eru: flúor, klór, bróm, joð og astat.

Flokkur
Lota
17
2 9
F
3 17
Cl
4 35
Br
5 53
I
6 85
At

Þessi efni eru tvíatóma efnasambönd í sínu náttúrulega ástandi. Þau þurfa eina rafeind til viðbótar til að fylla ysta rafeindahvolf sitt og hafa því ríka tilhneigingu til að mynda neikvæða jón með hleðsluna -1. Sölt sem innihalda þessar jónir eru kölluð halíð.

Halógen eru mjög hvarfgjörn og geta sem slík verið hættuleg lífverum, jafnvel lífshættuleg í nógu stórum skömmtum. Bæði klór og joð eru notuð sem sótthreinsunarefni í vatn og sundlaugar, opin sár, eldhúsvörur og þess háttar. Efnin drepa gerla og aðrar skaðlegar örverur og eru þar af leiðandi notuð við dauðhreinsun. Hvarfgirni þeirra er notuð í bleikingu. Klór er virka efnið í bleikiklór sem notaður er við þvott og einnig við framleiðslu á flestum pappírsvörum.

Þegar halíðjónir bindast við eitt vetnisatóm mynda þær vetnishalíðsýrur sem er hópur sérlega sterkra sýra. Allar eru þær rammar nema flúorsýra, HF.

Halógen geta bundist við hvert annað og myndað samhalógensambönd.

Mörg tilbúin lífræn efnasambönd, eins og plastfjölliður, og einnig sum náttúruleg efnasambönd, innihalda halógena. Þau kallast halógenuð efnasambönd. Til dæmis innihalda skjaldkirtilshormón joðatóm og klórjónir gegna lykilhlutverki í heilastarfsemi með því að vera milliefni í ferli hömlusendisins GASS (gamma-amínósmjörsýra). Hins vegar er talið að bróm og flúor séu ekki nauðsynleg fyrir efnaskipti manna, en flúor er samt notaður til þess að styrkja glerung á tönnum manna.

Remove ads
Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads