Hallærið mikla (Írland)

From Wikipedia, the free encyclopedia

Hallærið mikla (Írland)
Remove ads

Hallærið mikla (an Gorta Mór á írsku) eða hungrið mikla var tímabil mikillar hungursneyðar, sjúkdóma og fólksflótta frá Írlandi á milli 1845 og 1852.[1] Utan Írlands er hallærið stundum kallað írska kartöfluhungursneyðin því að um tveir fimmtu hlutar þjóðarinnar reiddu sig eingöngu á þessa ódýru uppskeru ýmissa hluta vegna.[2][3] Írar hafna þeirri nafngift og leggja áherslu á að um hafi verið að ræða manngerða hungurneyð sem hafi orsakast af vanrækslu breskra stjórnvalda, en ekki af uppskerubresti.[4]

Thumb
Teikning af ástandinu á Írlandi eftir James Mahony sem birt var í Illustrated London News árið 1847.

Í hungursneyðinni lést nær ein milljón fólks og milljón að auki fluttist frá Írlandi,[5] sem olli því að íbúum eyjarinnar fækkaði um 20% til 25%.[6]

Yfirleitt er kartöflumygla talin hafa átt sök á hungursneyðinni, en hún herjaði á kartöfluræktun í allri Evrópu á fimmta áratug 19. aldar. Áhrif hennar á Írlandi voru þó hlutfallslega meiri sökum þess að þriðjungur þjóðarinnar byggði búskap sinn á kartöflum. Fyrir þessu voru ýmsar ástæður, þ. á m. þjóðernislegar, trúarlegar, stjórnmálalegar, félagslegar og efnahagslegar. Má þar nefna landsvæði, fjarveru landeigenda og Kornlögin; sérstakan toll sem Bretlandsstjórn hafði sett á innflutt korn á árunum 1815 til 1846. Allt stuðlaði þetta að hörmungunum með mismunandi hætti og er enn mikið rætt um orsakirnar í sögulegum samræðum.

Remove ads

Tilvitnanir

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads