Harry Styles

enskur söngvari og leikari From Wikipedia, the free encyclopedia

Harry Styles
Remove ads

Harry Edward Styles (f. 1. febrúar 1994) er enskur söngvari, lagahöfundur, og leikari. Hann hóf ferilinn sinn sem þátttakandi í bresku sjónvarpsþáttunum The X Factor. Eftir að hafa dottið úr keppni, var hann fenginn til baka til að stofna hljómsveitina One Direction. Hún varð ein söluhæsta strákahljómsveit heims þar til hún tók sér hlé árið 2016.[1]

Staðreyndir strax Fæddur, Störf ...

Styles gaf út fyrstu plötuna sína í gegnum Columbia Records árið 2017. Hún hafnaði á toppi vinsældalista í Bretlandi og Bandaríkjunum, og var ein af mest seldu plötum heims það ár. Lagið „Sign of Times“ náði fyrsta sæti á UK Singles Chart. Önnur plata Styles, Fine Line (2019), komst einnig á topp Billboard 200 listans í útgáfuviku og var nefnd ein af „500 bestu plötum allra tíma“ af Rolling Stone árið 2020. Fjórða smáskífan af henni, „Watermelon Sugar“, komst efst á Billboard Hot 100. Árið 2022 gaf hann út þriðju plötuna Harry's House sem hlaut mikið lof og setti ýmis met. Fyrsta smáskífan, „As It Was“, var mest spilaða lag ársins 2022 á Íslandi.[2] Breiðskífan vann Grammy-verðlaun fyrir plötu ársins árið 2023.[3]

Styles hefur fengið margar viðurkenningar og verðlaun, þar með talið Brit-verðlaun, Grammy-verðlaun, Ivor Novello-verðlaun, og American Music-verðlaun. Hann hefur leikið í kvikmyndunum Dunkirk (2017), Don't Worry Darling (2022), og My Policeman (2022). Styles er þekktur fyrir áberandi tískustíl og var fyrsti karlmaðurinn til að sitja einn fyrir á forsíðu tímaritsins Vogue.[4]

Remove ads

Útgefið efni

Breiðskífur

  • Harry Styles (2017)
  • Fine Line (2019)
  • Harry's House (2022)

Tilvísanir

Tenglar

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads