Hrafntinna

From Wikipedia, the free encyclopedia

Hrafntinna
Remove ads

Hrafntinna er afbrigði náttúrulegs glers, sem myndast í eldgosum þegar feldspatshraun kólnar og storknar mjög hratt, en kristallast ekki. Ekki má rugla hrafntinnu saman við eldtinnu.

Thumb
Hrafntinna frá Lakesýslu í Oregon í Bandaríkjunum
Thumb
Hrafntinna í Kaliforníu

Lýsing

Líparítgler og er hrafnsvört eða dökkgrá á lit með glergljáa. Hrafntinna flokkast sem storkuberg og steindarlíki en ekki til steinda þar sem hún er ekki kristölluð. Hún samanstendur aðallega af kísli (SiO2) eða rúmlega 70% og samsetning hennar er mjög svipuð og í graníti og líparíti. Vegna þess að hrafntinna kristallast ekki geta hvassar hliðar hennar orðið næstum jafn þunnar og sameind.

Útbreiðsla

Helstu fundarstaðir á Íslandi eru hrafntinnuhraunin hjá Torfajökli og Hrafntinnuhryggur við Kröflu.

Tenglar

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads