Hvammsvirkjun
From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Hvammsvirkjun er áætluð vatnsaflsvirkjun í neðri hluta Þjórsár. Gert er ráð fyrir að Þjórsá verði stífluð um 6 km norðan við Árnes og sunnan Þjórsárdals. Fyrirhugað lón virkjunarinnar verður Hagalón. Vatn úr ánni verður leitt neðanjarðar að stöðvarhúsi við Skarðsfjall austan megin við ánna og aftur út í Þjórsá um 3 km norðan Árness.
Ef áætlun gengur eftir verður afl virkjunarinnar 82 MW og fallhæð hennar 32 metrar.
Sveitarstjóri Skeiða- og Gnúpverjahrepps hefur bent á að störf og tekjur vegna virkjunarinnar fara sáralítið til sveitarfélagsins og heldur til höfuðborgarsvæðisins. [1]
Árið 2013 var tekin ákvörðun á Alþingi um að Hvammsvirkjun færi í biðflokk Rammaáætlunar, m.a. vegna óvissu um áhrif á laxfiska í Þjórsá. Alþingi færði Hvammsvirkjun í nýtingarflokk Rammaáætlunar árið 2015.
Skipulagsstofnun birti álit á mati á umhverfisáhrifum Hvammsvirkjunar í mars árið 2018 þar sem sagði að áhrif virkjunarinnar á landslag yrði verulega neikvæð og að áhrif á útivist á ferðaþjónustu yrðu talsvert neikvæð. Einungis var fjallað um þessa þætti í álitinu þar sem um endurmat var að ræða frá matsskýrslu frá 2003[2].
Fjölmörg náttúruverndarsamtök hafa mótmælt virkjuninni og telja að enn vanti upp á frekari rannsóknir á þáttum eins og til dæmis lífríki, leirfoki, ferðaþjónustu og fasteignaverði. Því þurfi að vinna allt umhverfismat fyrir virkjunina upp á nýtt.[3]
Sumarið 2023 var virkjanaleyfið fellt úr gildi vegna þess að „Orkustofnun gætti ekki að fyrirmælum um stjórn vatnamála við undirbúning að útgáfu virkjanaleyfisins“.[4]
Í október 2024 voru öll leyfi fyrir virkjuninni komin í höfn og áætlað að virkjunin hefji starfsemi 2029. [5] Leyfið var hins vegar fellt aftur úr gildi í janúar 2025.[6]
Remove ads
Tilvísanir
Heimildir
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads