Jeannette Rankin

From Wikipedia, the free encyclopedia

Jeannette Rankin
Remove ads

Jeannette Pickering Rankin (11. júní 188018. maí 1973) var bandarískur kvenréttindafrömuður og stjórnmálakona. Hún var fyrsta konan sem var kosin á fulltrúaþing Bandaríkjanna, sem fulltrúi Repúblikana í Montana árið 1916. Hún sat í eitt kjörtímabil en var svo aftur kosin á þing árið 1940. Sem þingkona lagði hún fram lagafrumvarp um ótakmarkaðan kosningarétt kvenna sem varð að lokum nítjándi viðauki stjórnarskrár Bandaríkjanna árið 1920.

Thumb
Jeannette Rankin árið 1917.

Rankin var kjörin á þing í upphafi bæði fyrri heimsstyrjaldar og síðari heimsstyrjaldar. Hún var friðarsinni og kaus gegn stríðsyfirlýsingu Bandaríkjanna á hendur Þýskalandi 1917. Árið 1941 var hún eini þingmaðurinn sem kaus gegn stríðsyfirlýsingu á hendur Japan eftir árásina á Pearl Harbor.

Rankin var súffragetta á framsóknartímabilinu og barðist fyrir kvenréttindum í Montana, New York og Norður-Dakóta. Hún barðist líka fyrir fleiri borgararéttindum og tók þátt í að stofna samtökin American Civil Liberties Union árið 1920.

  Þessi grein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.
Remove ads
Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads